...eða svo er mér sagt. Það er vissulega snjókoma og snjókornin hreyfast alveg doldið og skefur sums staðar. Sem sagt alvöru vetur en þeir leggja eitthvað aðra merkingu í orðið stormur hér en heima á Klakanum

Núna er víst liðinn kaldasti janúarmánuður á Skáni frá 1987 og búin að vera hvít jörð samfleytt frá því fyrir áramót. Hér í kringum mig er fólk orðið hundleitt á þessum vetri. Allir nema ég en ég var svo sem í sumarblíðunni á Íslandi megnið af janúar svo það er ekki alveg að marka...

Tollinum fannst búslóðin mín ekkert spennandi og ég fékk hana í hendurnar í dag án nokkurra vandræða eða kostnaðar.

Kommóðan mín hefur fengið smá högg á bakið en okkur sýnist ekki vera neitt mál að laga það. Svo er bara að versla hillur í IKEA og fara að raða! Annars er spurning hvað við höfum mikinn tíma til að raða... við erum nefnilega svo upptekin á kvöldin sko. Erum búin að horfa á Næturvaktina og megnið af Dagvaktinni og verðum auðvitað að klára þættina. Verst að við þurfum svo að bíða eftir að Bjarnfreðarson komi á DVD. "Já, já" og "Já, sæll" er farið að heyrast marktækt oftar á heimilinu en áður. "Eigum við að ræða það eitthvað" er kannski full flókin setning svona enn sem komið er

Það er pínu gaman að horfa á þættina núna aftur eftir að hafa séð Bjarnfreðarson. Ég tek eftir hlutum sem ég tók ekkert sérstaklega eftir þegar ég sá þættina fyrst.