Dagbók lundastelpunnar

27.01.2010 15:52:50 / lundastelpan

Gerðu allt eins og meðalmaðurinn, annars gætirðu lent í veseni

...svona hefði stjörnuspáin mín getað litið út fyrir janúarmánuð. Kannski leit hún svona út, ég bara las hana ekki... 8|

Ég lét loksins verða af því að senda búslóðina mína út og var voða glöð að hafa sænska kennitölu því þá myndi ég ekki að lenda í veseni með að ná dótinu úr tollinum. Bjartsýn!!!!

Dagurinn í dag hefur farið í samskipti við alveg ágæta konu hjá Samskipum í Svíþjóð sem hefur greinilega eitthvað með skýrslugerð að gera og undirbúning gagna fyrir tollinn. Hjá henni frétti ég að til að fá búslóð flutta tollfrjálsa inn í landið þá þarf að flytja hana innan árs frá því að eigandinn er skráður inn í landið. Ég er búin að vera hér í 2,5 ár. 8|

Ég er sem sagt að fara að skrifa skjal sem á að lýsa aðstæðum mínum í Svíþjóð og ástæðum fyrir því að ég hafi ekki flutt búslóðina fyrr, reyna að fá gögn frá stúdentabústöðunum sem rökstyðja að ég hafi ekki getað fengið annað en herbergi þegar ég flutti hingað o.s.frv. Svo er bara að vona að það verði tekið gott og gilt svo ég þurfi ekki að borga formúgu (= toll + skatt) fyrir gamla draslið mitt.

Svo þurfti ég að gera tollskýrsluna upp á nýtt því hún var vitlaust útfyllt hjá mér og fékk upplýsingar um að ég ætti að skrifa undir hana með bláum penna. Eins gott að láta ekki hanka sig á því!!! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun


Ferðir